CATO Lögmenn veita alhliða þjónustu og ráðgjöf á sviði erfða- og fjölskylduréttar. Helstu verkefni sem CATO Lögmenn taka að sér á þessu sviði eru:
- Erfðamál:
- Gerð erfðaskráa og ráðgjöf varðandi erfðafjárskatt.
- Ráðgjöf og aðstoð við skipti dánarbúa sem sæta einkaskiptum, þ.m.t. samskipti við yfirvöld og öll nauðsynleg skjalagerð.
- Ráðgjöf og fyrirsvar fyrir erfingja við skipti dánarbúa sem sæta opinberum skiptum, þ.m.t. fyrirsvar fyrir dómstólum, samskipti við skiptastjóra og öll nauðsynleg skjalagerð.
- Hjúskapur og skilnaðarmál:
- Gerð kaupmála og annar undirbúningur fyrir hjúskap.
- Ráðgjöf og aðstoð við gerð fjárskiptasamninga milli sambúðarfólks.
- Ráðgjöf og aðstoð við fjárskipti milli hjóna og sambúðaraðila við skilnað.
- Ráðgjöf varðandi forsjá og meðlagsgreiðslur við skilnað.
- Ráðgjöf og fyrirsvar fyrir einstaklinga sem sækja um skilnað fyrir dómstólum eða sæta opinberum skiptum á fjárfélagi.