Rein – Innheimtuþjónusta

Innheimtustofan Rein ehf. sérhæfir sig í lögfræðilegri innheimtu á vanskilaskuldum. Starfsfólk Reinar kappkostar að veita viðskiptavinum sínum persónulega, skjóta og sveigjanlega þjónustu sem byggist á áratugareynslu starfsmanna og þekkingu á þessu sviði.

Lögð er áhersla á að sýna virðingu, kurteisi og öryggi í öllum innheimtustörfum. Rein gerir bæði fasta samninga við viðskiptavini um innheimtu vanskilaskulda og tekur einnig einstakar kröfur til innheimtu. Viðskiptavinir Reinar geta alltaf fengið upplýsingar á skrifstofutíma um stöðu sinna mála hjá starfsmönnum innheimtudeildar en jafnframt eru viðskiptavinum reglulega sendar upplýsingar um stöðu einstakra mála.

Innheimtustofan nýtur aðstoðar allra þeirra lögmanna sem starfa hjá CATO Lögmönnum.

Helga Guðjónsdóttir, innheimtufulltrúi

Jórunn Guðmundsdóttir, innheimtufulltrúi

Comments are closed.